Heiðardalur er allstór hringlaga dalur eða askja í um fimm km norður af þorpinu í Vík. Arnarstakksheiði girðir dalinn fjöllum að sunnan- og austanverðu, frá Arnarstakki að Vatnsárhálsi. Upp af norðurhlíðum dalsins er Heiðarheiði sem hækkar inn til Mýrdalsjökuls.
Heiðarvatn liggur í suðaustanverðum Heiðardal og úr því rennur Vatnsá um Vatnsárssund, þar sem dalurinn opnast til austurs. Í vatnið renna Heiðará og Þorleifsá, auk nokkra lækja. Botn Heiðardals er gróið flatlendi með túnum, vallendi og mýrum. Land á Heiðarheiði er margreytilegt, svo sem gróðurlítil sker, gljúfur og gróin dalverpi.
Í Heiðardal voru tvö býli, þ.e. Stóra-Heiði og Litla-Heiði, en þau eru komnir í eyði. Í dalnum eru tveir sumarbústaðir, en engar aðrar byggingar sem bera vitni um byggð eða búskap í dalnum. Aðkoma að Heiðardal er um Fall suðvestur af þeim stað þa sem Heiðarbæirnir stóð og liggur vegur austur um að Vatnsá.
Í vinnslu
Í vinnslu
Í vinnslu
Í vinnslu
Í vinnslu
Í Heiðardal lá þjóðleið um Mýrdal, þ.e. um Núpa norðan Kerlingadals, Kerlingardalsflatir, yfir Kerlingardalsá, um Vatnsársund, Heiðardal of yfir Fall. Önnur þjóðleið lá þjóðleið lá yfir Arnarstakksheiði sunnan Heiðardals. Nokkrar minjar og örnefni bera vott um þessa fornu þjóðleið eins og Breiðumýrarbrú Kárhólmabrú en svo nefndust vegir yfir mýrarsund.
Samkvæmt þjóðtrúnni bjó einsetumaðurinn Loddi í Loddahelli eða Lodda. Fjölmargar munnmælasögur hafa varðveist um Lodda þar sem hann var ýmist sagður írskur munkur eða blendingsþurs. Hann átti m.a. að hafa geymt peningana sína í laut skammt frá Loddahelli (í túninu á Stóru-Heiði), þ.e. í Loddapotti. Hann hafði hest sinn í Hesthelli við Loddahelli og varðhundur hans Kolur var í litlum hellisskúta, Hundshellir (Kolabóli),ofar í berginu. Hann er sagður hafa flutt til Víkur á efri árum og átt þar konu er Valva hét og saman áttu þau soninn Grákoll og dótturina Grákollu. Nokkur örnefni í Vík tengjast þeim, m.a. Loddastaðir, Grákolluleiði og Grákolluflötur.
Sam