Landslag yrði

lítils virði,

ef það héti ekki neitt.

Úr ljóði Tómasar Guðmundssonar Fjallganga

Uppruni örnefna á Íslandi

Íslensk örnefni eru að mestu leyti af norrænum uppruna, enda er talið að meginþorri landnámsmanna hafi komið frá Noregi. Einnig eru til gömul örnefni af gelískum uppruna, sem endurspegla tengsl Íslendinga við gelískt málsvæði á fyrstu öldum byggðar.

Á síðari tímum má auk þess greina áhrif frá öðrum málsvæðum, svo sem dönsku og ensku.

Drónamyndir

Skráning örnefna krefst margvíslegra gagna, svo sem hefðbundinna loftmynda og grunnkorta. Einnig geta skámyndir reynst gagnlegar við greiningu aðstæðna, eins og sjá má á vefnum Drónamyndir af byggð og náttúru Íslands.

Miðlun

Örnefnum er miðlað með landfræðilegum hætti í gegnum kortasjár og er Örnefnasjá NÍ eitt dæmi um slíka miðlun.

360° myndir veita glöggar upplýsingar um aðstæður á tilteknum stað eða svæði og nýtast einnig vel við miðlun örnefna.

Heimildir um örnefni

  • Örnefnaskrár

  • Kort

  • Bækur

  • Munnlegar heimildir

Verkefni í vinnslu

  • Landnám Reyni-Björns í Mýrdal og tengsl við Røyne í Valdres í Noregi

  • Örnefni tengd sögustöðum og gömlum ferðaleiðum í Mýrdal

  • Örnefni, náttúra og mannvist í Heiðardal í Mýrdal

  • Örnefni, náttúra og mannvist í Reynishverfi í Mýrdal

Pælingar

Breytingar á Reynisfjöru og áhrif á örnefni

Lesa meira

Örnefni, geopólitík stórvelda og ítök í landi

Lesa meira

Keltnenskur sagnaarfur og örnefni í Mýrdal

Lesa meira

Örnefni tengd útræði í Reynishverfi í Mýrdal

Lesa meira

Ertu með ábendingar um örnefni eða hugmyndir að verkefnum?