Hvernig verða örnefni til og hvernig festast þau í sessi?

Sogin á Reykjanesi

Hvað er örnefni?

Örnefni er nafn, orð eða orðasamband, á landfræðilegum punkti, línu eða svæði sem hægt er að setja á landakort og vísar til eins ákveðins staðar innan ákveðins samfélags; lands, héraðs, sveitabæjar, þéttbýlisstaðar, húss, götu, torgs, vegar, fjalls, dals, stöðuvatns, fjarðar, hafsvæðis, skers, miðs o.s.frv.

Heimild: Lög um örnefni nr. 22/2015.

Sogin á Reykjanesi

Hvernig verða örnefni til?

Örnefni hafa fylgt manninum frá örófi alda. Hann hefur snemma farið að gefa stöðum í umhverfi sínu nöfn til þess að gera sér umhverfið heimalegt. Nöfnin hafa lýst stöðunum með einhverjum hætti, þau hafa borið vitni um sérkennileika þeirra, lit eða lögun eða þau hafa vitnað um atburði sem orðið höfðu á stöðunum og minnisstæðir urðu.

Íslensk örnefni hafa fylgt landnámsmönnum. Þeir hafa snemma gefið stöðum í landnámi sínu nöfn. Örnefni á stærstu stöðunum urðu almannaeign en örnefni á smáum stöðum í einstökum landareignum voru aðeins þekkt af heimamönnum eins og er enn í dag. Örnefnin voru eins og vegvísar í landinu.

Heimild: Svavar Sigmundsson. (2009).

Kåsebergas steinar eða Ales Stenar á Skáni

Uppruni örnefna á Íslandi

Íslensk örnefni eru að mestu leyti af norrænum rótum runnin, enda er talið að meginþorri landnámsmanna hafi komið frá Noregi. Þó eru fjölmörg gömul nöfn og örnefni af gelískum uppruna, sem endurspegla tengsl Íslendinga við gelískt málsvæði á fyrstu öldum byggðar.

Heimild: Hallgrímur J. Ámundason (2018).

Á síðari tímum má einnig greina áhrif frá öðrum málsvæðum, svo sem dönsku og ensku.

Dyrhólaey í Mýrdal.

Örnefni eru menningararfur

Örnefni, þar með talin bæjanöfn og götuheiti, eru hluti af menningararfi íslensku þjóðarinnar og hafa mörg hver varðveist frá upphafi búsetu í landinu. Samkvæmt lögum um örnefni ber að vernda þessar minjar eftir því sem kostur er, enda telur Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (e. UNESCO) viðhald menningarerfða af þessu tagi mikilvægt.

Heimild: Vefur Árnastofnunar.

Útgangspunktar við greiningu örnefna

Þverfagleg nálgun

Leitað er til ýmissa fræðigreina, svo sem sagnfræði, fornleifafræði, jarðfræði, þjóðfræði og landafræði, við söfnun, flokkun og túlkun örnefna.

Flókið nafngiftarferli

Annars vegar eru teknar formlegar ákarðanir um tiltekin ný örnefni og breytingar á þeim samkvæmt ákvæðum laga um örnefni. Það á t.d. við um nýtt eða breytt bæjarnafn, götunafn, nafn á nýjum þéttbýliskjarna eða hverfi. Hins vegar verða flest örnefni til í óformlegu ferli, þau mótast í samfélaginu yfir langan tíma og hafa ýmist verið skjalfest eða varðveitt í munnlegri geymd.

Mótast í samfélagi

Örnefni eru gjarnan lýsandi fyrir það samfélag og þann tíðaranda sem ríkti þegar þau urðu til. Þau endurspegla jafnframt margvísleg menningarleg ítök og söguleg áhrif og á viðkomandi stað.

Fjölbreytt varðveisla

Örnefni hafa verið varðveitt með margvíslegum hætti, svo sem í rituðum heimildum, kortum og munnlegri geymd.

Gildi fyrir íbúa og gesti

Gengið er út frá því að örnefni skipti miklu máli fyrir sjálfsmynd fólks á viðkomandi stað, svo sem fyrir þá sem þar búa, nýta landið eða ferðast um það. Einnig geta örnefni stuðlað að sterkari staðarímynd og eflt staðaranda svæða og byggðarlaga.

Tengsl við náttúru og sögu

Áhersla er lögð á að greina upplýsingar um náttúru og sögu svæða til að varpa ljósi á uppruna og merkingu örnefna. Það er meðal annars gert með stuttum lýsingum á staðháttum, yfirliti yfir náttúrufar og sögu, sem og kortlagningu menningarminja og þjóðsagna.

Fjölbreytt miðlun

Leitast er við að miðla örnefnagögnum á aðgengilegan og áhugaverðan hátt, til dæmis með kortasögum (StoryMaps), stuttum og aðgengilegum textum og gagnvirkum vefsjám. Einnig er stuðst við hefðbundna miðla, svo sem prentuð örnefnakort.

Heimildir

Ertu með ábendingar um aðferðir við greiningu örnefna?