Hvar má finna upplýsingar um örnefni og tilurð þeirra?

Óprentað efni

Handritasöfn

Handrit eru ritaðar heimildir á pappír eða skinni, svo sem söguleg skjöl, bréf og bókmenntaverk. Handritasöfn eru meðal annars varðveitt á Landsbókasafni Íslands og hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hægt er að nálgast fjölmörg handrit úr þessum söfnum og úr einkasöfnum á handrit.is.

Skjalasöfn

Í skjalasöfnum er safnað, varðveitt og veittur aðgangur að sögulegum gögnum, opinberum skjölum og öðrum heimildum um líf og starf í landinu. Þjóðskjalasafn Íslands er aðalskjalasafn ríkisins, en héraðsskjalasöfn eru starfrækt víðs vegar um landið og sinna varðveislu heimilda sveitarfélaga og héraða. Stafrænar heimildir er meðal annars að finna á heimildir.is.

Örnefnasöfn

Örnefnasöfn geyma fjölbreytt gögn, svo sem örnefnaskrár, ljósmyndir, uppdrætti, teikningar, skrár yfir fiskimið og vasabækur. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðveitir heimildir um örnefni víða um land, og hægt er að nálgast skjöl úr örnefnasafni stofnunarinnar á Nafnið.is.

Munnlegar heimildir

Munnlegar heimildir eru frásagnir fólks af atburðum sem það hefur annaðhvort upplifað sjálft eða kynnst í gegnum aðra. Dæmi um munnlegar heimildir eru viðtöl við eldra fólk, frásagnir, sagnir og þjóðsögur, auk ljóða, söngva, arfleifðar og hefða. Munnlegar heimildir eru víða aðgengilegar á netinu, til dæmis á Ísmús.is.

Útgefið efni

Bækur

Mikilvægar heimildir um örnefni er að finna í ritum og ritröðum á borð við Árbók Hins íslenska fornleifafélags og Árbók Ferðafélags Íslands. Einnig má nefna byggðasögur, héraðssögur og endurminningar. Þar að auki hafa verið gefnar út fornsögur, sýslu- og sóknalýsingar og jarðabækur sem geyma margvíslegar upplýsingar um örnefni. Á Leitir.is er hægt að leita í bókasöfnum sem tilheyra Landskerfi bókasafna.

Landakort

Meðal mikilvægra kortaheimilda eru dönsku herforingjaráðskortin frá upphafi 20. aldar, kort breska og bandaríska hersins frá miðri 20. öld (AMS-kortin) og kortaútgáfur Landmælinga Íslands. Söguleg kort má meðal annars nálgast á Íslandskort.is, þar sem finna má elstu kort sem til eru af Íslandi, og á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Skámyndir geta reynst gagnlegar við skráningu örnefna, til dæmis við greiningu staðhátta og aðstæðna

— Drónamyndir af byggð og náttúru Íslands

Ertu með ábendingar um gögn fyrir greiningu örnefna?