Opinn verkefnavefur um söfnun, greiningu og miðlun upplýsinga um örnefni
Um
Vefinn Örnefni.net má rekja til vinnu höfundar við greiningu á sögu lands og byggðar í Reynishverfi. Verkefnið hófst í BS-námi í landafræði við Háskóla Íslands á árunum 1990–1993.
Markmið vefsins er að gera upplýsingar um örnefni aðgengilegar á netinu og skoða og greina hugmyndir um tilurð og hlutverk í nútíma samfélagi.
Gengið er út frá því að örnefni séu mikilvægur menningararfur og vitnisburður um tengsl fólks við umhverfi sitt. Þau beri að vernda og viðhalda sem lifandi menningararfleifð. Í því felst jafnframt að stuðla að skapandi vinnu með þennan menningararf og skila honum til næstu kynslóða á merkingarbæran hátt.
Höfundur vefsins og umsjónarmaður er Einar Jónsson, skipulagsfræðingur og landfræðingur.