Reynishverfi í Mýrdal er samheiti fyrir bæina vestan undir Reynisfjalli. Þar eru fjölmörg örnefni sem tengjast einna helst nýtingu lands til lanbúnaðar, seljum, hlunnindum og útræði. Unnið er að því að samræma þessi gögn og miðla á kortum.
Jarðirnar Stóra- og Litla-Heiði og Kárhólmi í Mýrdal eru farnar í eyði en örnefnin lifa áfram ásamt fjölmörgum sögum og menningarminjum. Unnið er að því að greina þessi gögn og skrá sem landupplýsingar. Allar góðar ábendingar eru vel þegnar.
Vestan Hafnarfjarðar eru Hraunin en svo nefnast jarðirnar Strumur, Óttarsstaðir og Lónakot. Um aldamótin 1900 voru þar 12 býlli og kot, en nú hefur byggð lagst af. Svæðið er ríkt af minjum og örnefnum og sel eru í Almenningi suður af Hraunum.