Örnefni.net er opinn verkefnavefur
Um vefinn
Markmið vefsins er að gera upplýsingar um örnefni aðgengilegar á netinu. Einnig að skapa stafræna umgjörð til skoða og greina hugmyndir um tilurð og hlutverk í nútíma samfélagi.
Gengið er út frá því að örnefni séu mikilvægur menningararfur og vitnisburður um tengsl fólks við umhverfi sitt. Þau beri að vernda og viðhalda sem lifandi menningararfleifð. Í því felst jafnframt að vinna á skapandi hátt með þennan menningararf og skila honum til næstu kynslóða á merkingarbæran hátt.
Höfundur vefsins og umsjónarmaður er Einar Jónsson, skipulagsfræðingur og landfræðingur.